Nesskóli auglýsir eftir skólaritara.
Skólaritari veitir skrifstofu skólans forstöðu. Skrifstofan þjónar öllum starfsmönnum og nemendum skólans og er tengill milli skóla og heimilis. Um er að ræða 60% fjölbreytt starf og er daglegur starfstími frá kl. 7:45-13:15.
Nesskóli er grunnskóli með rúmlega 180 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn stendur í hjarta bæjarins. Leikskóli, íþróttahús og Verkmennaskóli Austurlands eru í næsta nágrenni og stutt er í sundlaugina. Nesskóli er Byrjendalæsisskóli og Erasmus-skóli. Uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar er við lýði í skólanum og kennt er í anda Leiðsagnarnáms. Í skólanum er leitast við að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum og áhersla er lögð á list- og verkgreinakennslu. Nánari upplýsingar um Nesskóla má finna á heimasíðu skólans, www.nesskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Dagleg afgreiðsla og símavarsla.
- Móttaka fjarvistartilkynninga og að hringja heim í samráði við kennara.
- Annast innritun og nemendaskrá í Mentor.
- Annast alla forfalla- og atvikaskráningu í Mentor og sjá um útprentun.
- Eftirlit með tækjum og búnaði á skrifstofu, sjá um pantanir á ritföngum og kalla til viðgerðamenn ef þörf krefur.
- Annast skjalavörslu.
- Annast ýmis ritarastörf fyrir stjórnendur, sendingu og móttöku pósts og dreifingu hans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Góð færni í tölvunotkun.
- Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Ábyrgð og stundvísi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 3.maí 2026.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Júlía Geirsdóttir skólastjóri sigrunj@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 4771124
Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.