Leitað er að kennurum í eftirtalin verkefni; umsónarkennslu á yngsta og miðstigi, íslensku-, dönsku-, ensku-, smíða-, textíl- og sundkennslu.
Nesskóli er grunnskóli með tæplega 190 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn stendur í hjarta bæjarins. Leikskóli, íþróttahús og Verkmennaskóli Austurlands eru í næsta nágrenni og stutt er í sundlaugina. Nesskóli er Byrjendalæsisskóli og Erasmus-skóli. Uppeldisstefnan Uppeldi til ábyrgðar er við lýði í skólanum og kennt er í anda Leiðsagnarnáms. Í skólanum er leitast við að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum og áhersla er lögð á list- og verkgreinakennslu.
Nánari upplýsingar um Nesskóla má finna á heimasíðu skólans, nesskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Annast kennslu nemendahóps.
- Vinna með bekkjarbrag og menningu.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í þróunarverkefnum innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
- Samskipta og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Skipulagshæfileikar.
- Færni til að innleiða nýjungar.
- Góð íslenskukunnátta.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Júlía Geirsdóttir skólastjóri sigrunj@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 4771124
Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, upplýsingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.