Við Eskifjarðarskóla er laus staða sérkennara, um er að ræða framtíðarstarf.
Í Eskifjarðarskóla eru 140 nemendur í 1. til 10. bekk, áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, vellíðan nemenda og góð samskipti. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingum sem eru tilbúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks. Í skólanum eru einnig til húsa tónlistarskólinn,og bókasafn bæjarins.
Einkunnarorð skólans eru: Áræði, færni, virðing og þekking. Lögð er áhersla á skemmtilegt og skapandi skólastarf, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð.
Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, grunnesk.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að uppeldi og menntun barna samkvæmt aðalnámskrá.
- Teymisvinna vegna nemenda með sérþarfir.
- Ráðgjöf til kennara og foreldra varðandi nám og kennslu.
- Aðlögun á námsefni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.
- Framhaldsnám er kostur.
- Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum.
- Faglegur metnaður og frumkvæði.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga og KÍ
Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2026
Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit um nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Traustadóttir skólastjóri, sigrun@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 470-9152 / 868-8485
Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.