Kennara vantar við Eskifjarðarskóla

side photo

Eskifjarðarskóli leitar eftir grunnskólakennurum til starfa skólaárið 2026 - 2027.

Í Eskifjarðarskóla eru 140 nemendur í 1. til 10. bekk, áhersla er á fjölbreytta kennsluhætti, vellíðan nemenda og góð samskipti. Leitað er að metnaðarfullum og skapandi einstaklingum sem eru tilbúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks. Í skólanum eru einnig til húsa tónlistarskólinn og bókasafn bæjarins.

Einkunnarorð skólans eru: Áræði, færni, virðing og þekking.

Lögð er áhersla á skemmtilegt og skapandi skólastarf, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð.
Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, grunnesk

 

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Annast kennslu nemenda, undirbúning og námsmat í samstarfi og samráði við aðra kennara, skólastjórnendur og foreldra
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í þróunarverkefnum innan hans

Helstu menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum
  • Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
  • Faglegur metnaður og frumkvæði
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarafélaga og KÍ

Ráðningarform - tímabundin ráðning með möguleika á framtíðar starfi.

 

Ráðið er í störfin frá 1. ágúst n.k. Umsóknarfrestur er til 9. apríl 2026

Umsóknum skal fylgja ferilsskrá, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

 

Allar nánari upplýsingar veitir Sigrún Traustadóttir skólastjóri, sigrun@skolar.fjardabyggd.is eða í síma 470-9152

Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.