Kennarastöður við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

side photo

Leitað er að kennurum í eftirtalin verkefni; umsjón á yngsta og miðstigi, íslensku-, dönsku-, ensku-, samfélagsfræði- og verkgreinakennslu.

 

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru um 100 nemendur. Skólinn starfar í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar undir sama þaki og leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólastarfinu er unnið með byrjendalæsi, að innleiðingu leiðsagnarnáms og innleiðingu uppfærðrar aðalnámskrár. Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Skólinn er hluti af öflugu skólasamfélagi í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur".

Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans: fask.is

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Annast kennslu nemendahóps.
  • Vinna með bekkjarbrag og menningu.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í þróunarverkefnum innan skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Færni til að innleiða nýjungar.
  • Góð íslenskukunnátta

Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

Nánari upplýsingar veitir Líneik Anna Sævarsdóttir, lineik@fjardabyggd.is eða síma 8951532.

Ráðið er í störfin frá 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.

 

Umsóknum skal fylgja ferilsskrá, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

 

Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.