Leikskólakennari við leikskólann Dalborg, Eskifirði

side photo

Dalborg er 50 nemenda skóli sem skiptist á 4 deildar. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Dalborg vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans: dalborg.leikskolinn.is

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur undir stjórn deildarstjóra að uppeldi og menntun barnanna.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar.
  • Situr starfsmannafundi, deildarfundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varða starfsemi leikskólans.
  • Samstarf við foreldra/forráðamenn barna á leikskólanum.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
  • Reynsla af starfi með börnum æskileg
  • Ábyrgð og stundvísi
  • Góð íslenskukunnátta

Allar frekari upplýsingar veitir Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á thordismb@skolar.fjardabyggd.is

 

Ráðið er í starfið frá og með 15. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2026.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

 

Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur.

 

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.