Kæribær er rúmlega 40 nemenda leikskóli þar sem starfræktar eru 2 deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki.
Unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn tekur virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans Kæribær
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppeldi og menntun leikskólabarna
- Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs
- Foreldrasamstarf í samráði við stjórnendur
Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
- Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem kennari
- Reynsla af starfi með börnum kostur
- Góð samskiptahæfni og frumkvæði
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Ef ekki fæst kennari með leyfisbréf kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða reynslumikinn starfsmann samkvæmt lögum nr. 95/2019.
Ráðið er í starfið frá 20. júlí 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Hildur Ósk Pétursdóttir, leikskólastjóri í síma 475-9055 eða hildurosk@skolar.fjardabyggd.is og Guðný Elísdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 475-9055 eða gudny@skolar.fjardabyggd.is