Kæribær er rúmlega 40 nemenda leikskóli þar sem starfræktar eru 2 deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki.
Unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn tekur virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans: Kæribær
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skapa hvetjandi námsumhverfi og vera faglegur leiðtogi.
- Leggja sig fram um að skapa umbótamiðað lærdómssamfélag.
- Vinna af fagmennsku að farsæld, velferð og menntun barna.
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu og framkvæmd á starfi deildarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem kennari.
- Reynsla af starfi með börnum kostur.
- Góð samskiptahæfni og frumkvæði.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Ef ekki fæst kennari með leyfisbréf kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða reynslumikinn starfsmann samkvæmt lögum nr. 95/2019.
Ráðið er í starfið frá 20. júlí 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Hildur Ósk Pétursdóttir, leikskólastjóri í síma 475-9055 eða hildurosk@skolar.fjardabyggd.is og Guðný Elísdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 475-9055 eða gudny@skolar.fjardabyggd.is