Starf við sértækan stuðning við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði

side photo

Starf við sértækan stuðning við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði er laust til umsóknar.

Í leikskólanum Lyngholti eru tæplega 90 nemendur. Skólastarfið er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "Allir geta eitthvað, engin getur allt".

Skólinn er einn af fimm leikskólum í Fjarðabyggð sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, lyngholt.leikskolinn.is

 

Helstu verkefni:

  • Ábyrgð á þjálfun og umönnun nemenda með sérþarfir.
  • Vinna við þjálfun og umönnun nemenda með sérþarfir.
  • Aðstoð við nemendur í daglegum athöfnum.
  • Leit að leiðum til að ýta undir færni og sjálfstæði nemenda.
  • Styður við réttindi nemenda og stuðlar að því að þeir njóti bestu þjónustu.
  • Vinna samkvæmt stuðningsáætlun nemenda.
  • Samstarf við annað starfsfólk, nemendur, foreldra og forráðamenn.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem þroskaþjálfi/iðjuþjálfi er æskilegt.
  • Reynsla af starfi með börnum með sérþarfir er æskileg.
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg.
  • Þekking á sjónrænu skipulagi.
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður, ásamt skipulögðum vinnubrögðum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

 

Starfið er laust frá 1. júní 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.

 

Umsóknum skal fylgja ferilskrá, leyfisbréf í faggrein og upplýsingar um meðmælendur. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

 

Allar frekari upplýsingar veitir Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri, í síma 4741257/8603176 eða á netfanginu lisalotta@skolar.fjardabyggd.is