Störf leikskólakennara við leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði eru laus til umsóknar.
Í leikskólanum Lyngholti eru tæplega 90 nemendur. Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "Allir geta eitthvað, engin getur allt".
Skólinn er einn af fimm leikskólum í Fjarðabyggð sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, lyngholt.leikskolinn.is
Helstu verkefni:
- Uppeldi og menntun leikskólabarna
- Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs
- Foreldrasamstarf í samráði við stjórnendur
- Önnur verkefni
Menntun og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari
- Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður, ásamt skipulögðum vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Allar frekari upplýsingar veitir Lísa Lotta Björnsdóttir, leikskólastjóri, í síma 4741257/8603176 eða á netfanginu lisalotta@skolar.fjardabyggd.is