Matráður við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað

side photo

Eyrarvellir er rúmlega 90 nemenda leikskóli þar sem starfrækar eru 6 - 7 deildir. Skólinn er skipaður líflegu, góðu og metnaðarfullu fagfólki.

Unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn tekur virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans eyrarvellir.leikskolinn.is

 

Helstu verkefni:

  • Umsjón með eldhúsi, sér um matseld og bakstur.
  • Skipuleggur matseðla.
  • Annast innkaup á matvörum, áhöldum og tækjum.
  • Samstarf við annað starfsfólk skólans og nemendur.
  • Daglegur rekstur eldhúss.

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Menntun á sviði matreiðslu og næringar og/eða reynsla á því sviði.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Jákvæðni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

 

Ráðið er í stöðuna frá 10. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.

 

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

 

Nánari upplýsingar veita Sara Lind Dagbjartsdóttir, leikskólastjóri í síma 470-1460 eða sara@skolar.fjardabyggd.is og Jóhanna Smáradóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 470-1462 eða johannas@skolar.fjardabyggd.is