Leikskólastjóri við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað

side photo

Staða leikskólastjóra við leikskólann Eyrarvellir, Neskaupstað er laus til umsóknar.

Eyrarvellir er rúmlega 90 nemenda leikskóli þar sem starfrækar eru 6 - 7 deildir. Skólinn er skipaður metnaðarfullu fagfólki.

Unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn tekur virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð og á nánu samstarfi við Nesskóla. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans eyrarvellir.leikskolinn.is

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Fagleg forysta, stefnumótun, þróun skólastarfs og gerð skólanámskrár.
  • Skipulag skólastarfs, náms og kennslu.
  • Samhæfing starfskrafta skólans.
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri.
  • Samstarf við stofnanir, heimili og samfélag.

 

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu í leikskóla.
  • Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg.
  • Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg.
  • Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

 

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.

 

Umsóknum skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf þar sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

 

Nánari upplýsingar veitir Líneik Anna Sævarsdóttir stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu, lineik@fjardabyggd.is og í síma 8951532