Sérkennslustjóri við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað

side photo

Eyrarvellir er rúmlega 90 nemenda leikskóli þar sem starfrækar eru 6 - 7 deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki.

Unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn tekur virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans eyrarvellir.leikskolinn.is

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu, annast frumgreiningu og ráðgjöf til starfsmanna.
  • Ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu og yfirumsjón með gerð verkefna fyrir þau.
  • Veitir foreldrum barna sem njóta sérkennslu; stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfirmaður felur honum.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg.
  • Reynsla af starfi með börnum á leikskólaaldri.
  • Góð færni í samskiptum.
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi .
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.

 

Umsóknum skal fylgja ferilskrá, leyfisbréf til kennslu, kynningarbréf þar sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið og upplýsingar um meðmælendur.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

 

Nánari upplýsingar veita Sara Lind Dagbjartsdóttir, leikskólastjóri í síma 470-1460 eða sara@skolar.fjardabyggd.is og Jóhanna Smáradóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 470-1462 eða johannas@skolar.fjardabyggd.is