Leikskólakennarar við leikskólann Eyrarvelli

side photo

Eyrarvellir er rúmlega 90 nemenda leikskóli þar sem starfrækar eru 6 - 7 deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki.

Unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn tekur virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans eyrarvellir.leikskolinn.is


Helstu verkefni:

  • Uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs
  • Foreldrasamstarf í samráði við stjórnendur
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari
  • Reynsla af starfi með börnum kostur
  • Góð samskiptahæfni og frumkvæði
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

 

Ef ekki fæst kennari með leyfisbréf kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða reynslumikinn starfsmann samkvæmt lögum nr. 95/2019.

 

Ráðið er í stöðuna frá 10. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.

 

Umsóknum skal fylgja ferilskrá, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

 

Nánari upplýsingar veita Sara Lind Dagbjartsdóttir, leikskólastjóri í síma 470-1460 eða sara@skolar.fjardabyggd.is og Jóhanna Smáradóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 470-1462 eða johannas@skolar.fjardabyggd.is