Eyrarvellir er rúmlega 90 nemenda leikskóli þar sem starfrækar eru 6 - 7 deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki.
Unnið er eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og skólinn tekur virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans eyrarvellir.leikskolinn.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Skapa hvetjandi námsumhverfi og vera faglegur leiðtogi.
- Leggja sig fram um að skapa umbótamiðað lærdómssamfélag.
- Vinna af fagmennsku að farsæld, velferð og menntun barna.
- Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu og framkvæmd á starfi deildarinnar.
Menntun og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari.
- Reynsla af starfi með börnum kostur.
- Góð samskiptahæfni og frumkvæði.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Ef ekki fæst kennari með leyfisbréf kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða reynslumikinn starfsmann samkvæmt lögum nr. 95/2019.
Ráðið er í starfið frá 10. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.
Umsóknum skal fylgja ferilsskrá, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Sara Lind Dagbjartsdóttir, leikskólastjóri í síma 470-1460 eða sara@skolar.fjardabyggd.is og Jóhanna Smáradóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 470-1462 eða johannas@skolar.fjardabyggd.is