Leitað er að skólaliða sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.
Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli og í honum eru nemendur á aldrinum 1 - 16 ára. Kennt er í báðum byggðakjörnum, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði og nemendum á grunnskólaaldri er ekið á milli byggðarkjarna. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans bsskoli.is
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli vinnur samkvæmt uppeldisaðferðinni Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Fylgjast með og aðstoða nemendur í leik og starfi.
- Móttaka á skólamat, afgreiðsla og frágangur í eldhúsi og matsal.
- Ræsting og almenn þrif samkvæmt ræstingaráætlun.
- Hreingerning skólahúsnæðis og gólfbón að vori og hausti.
- Umsjón með óskilamunum í skólanum.
- Kynna sér og framfylgja stefnu skólans og Fjarðabyggðar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð samvinnu- og samskiptahæfni.
- Jákvæðni og áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði í starfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Steinþór Snær Þrastarson skólastjóri steinthor@skolar.fjardabyggd.is; s: 8478662.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um starfið.