Kennarastöður við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla

side photo

Leitað er að kennurum sem eru reiðubúnir að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.

Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli og í honum eru nemendur á aldrinum 1 - 16 ára. Kennt er í báðum byggðakjörnum, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði og nemendum á grunnskólaaldri er ekið á milli byggðarkjarna. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans bsskoli.is

Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli vinnur samkvæmt uppeldisaðferðinni Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Annast kennslu nemendahóps.
  • Vinna með bekkjarbrag og menningu.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í þróunarverkefnum innan skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
  • Samskipta og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og faglegur metnaður.
  • Ábyrgð í starfi og stundvísi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Færni til að innleiða nýjungar.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar veitir Steinþór Snær Þrastarson, skólastjóri í steinthor@skolar.fjardabyggd.is; s:8478662.

 

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.

 

Umsóknum skal fylgja ferilskrá, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

 

Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um störfin.