Leitað er að deildarstjóra sem er reiðubúinn að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks sem innir af hendi skemmtileg og krefjandi störf með nemendum skólans.
Breiðdals-og Stöðvarfjarðarskóli er samrekinn leik-og grunnskóli og í honum eru nemendur á aldrinum 1 - 16 ára. Kennt er í báðum byggðakjörnum, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði og nemendum á grunnskólaaldri er ekið á milli byggðakjarna.
Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans bsskoli.is
Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra
- Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans
- Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni
- Sér um foreldrasamstarf á deildinni
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu, starfsreynsla er æskileg.
- Samskipta og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Skipulagshæfileikar.
- Færni til að innleiða nýjungar.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Steinþór Snær Þrastarson skólastjóri steinthor@skolar.fjardabyggd.is og í síma 8478662.
Ráðið er í stöðuna frá 20. júlí 2026. Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um starfið.