Sumarstarf í búsetuþjónustu og skammtímadvöl

side photo

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingum í sumarafleysingu með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfið er í búsetuþjónustu fatlað fólks í Fjarðabyggð og skammtímadvöl fyrir fötluð börn. Verkefnin eru að veita einstaklingum þjónustu við athafnir dagslegs lífs og veita þeim stuðning við að vera virkur þátttakandi í samfélaginu.

Um er að ræða 80-100% sumarsstarf á Reyðafirði í vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, helgar- og næturvaktir.

 

Starfslýsing:

  • Veita einstaklingum stuðning við athafnir daglegs lífs.
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
  • Virkja einstakling til þátttöku í samfélaginu.
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd.
  • Almenn heimilisstörf.

 

Hæfniskröfur:

  • Viðkomandi þarf að vera orðin 18 ára.
  • Hreint sakavottorð.
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.

 

Umsóknarfrestur er til og með 9.apríl 2026

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna. Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Ella, forstöðumaður búsetuþjónustu, í 470 - 9014 síma eða í gegnum netfangið kristin.gudmundsdottir@fjardabyggd.is