STARFSMAÐUR Í HEIMAÞJÓNUSTU
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í heimaþjónustu í Fjarðabyggð. Að öllu jafna er inni á heimilum og eftir þjónustusamningum hvers og eins þjónustuþega, staðsetningin er því breytileg.
Um er að ræða tímabundið 50-70% starf með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Staðsetning er á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík og er æskilegt að búseta umsækjanda sé þar.
Starfsmaður í heimaþjónustu starfar eftir lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglum Fjarðabyggðar um stuðningsþjónustu. Markmiðið heimaþjónustu er að styðja eldra fólk til að búa sem lengst á eigin heimilum og að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Lögð er áhersla á að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.
Helstu verkefni:
- Félagslegt innlit og stuðningur
- Aðstoð við heimilishald, svo sem daglegar athafnir, innkaup og fl.
- Veita persónulega aðstoð
Hæfniskröfur:
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
- Gerð er krafa um að starfsmenn tali og skilji íslensku
- Gerð er krafa um hreint sakavottorð
- Gerð er krafa um bílpróf og eigin bíl til afnota
Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til 16. mars 2026 og nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Frekari upplýsingar veitir Helga Sól Birgisdóttir, forstöðumaður heimaþjónustu. Sími: 470-9015. Netfang: helga.birgisdottir@fjardabyggd.is