Garðyrkjudeild Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf laus til umsóknar. Í störfunum felst almenn garðyrkjustörf og vinna við fegrun bæjarfélagsins t.d sláttur og umhirða grænna svæða.
Sumarstörfin í garðyrkjudeildinni eru ætluð ungu fólki fæddu 2010 og eldri. Umsækjendur þurfa að vera stundvísir og samviskusamir, búa yfir almennri kurteisi og hæfni í samskiptum. Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni er mikill kostur ásamt áhuga á umhverfismálum.
Umsóknarfrestur er til og með 1.apríl n.k. og tekið er við umsóknum á ráðningavef Fjarðabyggðar á starf.fjardabyggd.is
Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir á netfanginu helga.b@fjardabyggd.is