Flokkstjórar 2026

side photo

Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina? 

 

Vinnuskóli Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf flokkstjóra laus til umsóknar. Í störfunum felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga fæddum 2011 og 2012 við ýmis umhverfisstörf. Flokkstjórar þurfa að vera hvetjandi, stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir.

 

Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri, hafi hreint sakavottorð, bílpróf ásamt því að búa yfir skipulags- og leiðtogahæfileikum.

 

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2026 og launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

 

Frekari upplýsingar um störfin veitir Helga Björk Einarsdóttir, garðyrkjustjóri Fjarðabyggðar á netfanginu helga.b@fjardabyggd.is