Starfsfólk óskast í sumarfrístund í Fjarðabyggð

side photo

Langar þér að starfa með börnum í Fjarðabyggð í sumar?

 

Fjarðabyggð óskar eftir að ráða frístundaleiðbeinendur í sumarfrístund í Fjarðabyggð.

Starfið í sumarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri. Sumarfrístundin er fyrir börn sem voru að ljúka 1. - 4. bekk sumarið 2026. Sumarfrístundin verður opin frá kl. 07:45 til 16:15 frá og með mánudeginum 8. júní og til með föstudeginum 14. ágúst. Lokanir eru misjafnar eftir kjörnum, hver frístund lokar í fjórar vikur í senn, þá taka við önnur verkefni eins og hjálpa í öðrum frístundum, þrif, frekari undirbúningur og fleira.

 

Helstu verkefni:

  • Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi í sumarfrístund.
  • Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
  • Aðstoða börn í kaffitímum.

Hæfnis- og menntunarkröfur:

  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi æskileg.
  • Áhugi á að vinna með börnum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði.
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð.
  • Metnaður og dugnaður.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum.

Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2026.

Nánari upplýsingar veitir Verna Sigurðardóttir í gegnum netfangið: verna.sigurdardottir@fjardabyggd.is