Langar þér að starfa með börnum í Fjarðabyggð í sumar?
Fjarðabyggð óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa með börnum með sértækan stuðning í sumarfrístund í Fjarðabyggð. Starfið í sumarfrístundinni byggist á útivist, hreyfingu, leikjum og fjöri. Sumarfrístundin er fyrir börn sem voru að ljúka 1. - 4. bekk sumarið 2026. Stuðningsfulltrúar veita félagslegan stuðning og persónulega aðstoð við börnin í almennri sumarfrístund.
Sumarfrístundin verður opin frá kl. 07:45 til 16:15 frá og með þriðjudeginum 8. júní til og með föstudagsins 14. ágúst. Lokanir eru misjafnar eftir kjörnum, hver frístund lokar í fjórar vikur í senn, þá taka við önnur verkefni eins og að hjálpa í öðrum frístundum, þrif, frekari undirbúningur og fleira.
Helstu verkefni:
- Starfsmaður sinnir stuðning sem einstaklingur þarf á að halda og þeirra þörfum í frístundarstarfi.
- Leiðbeina einstakling í leik og starfi í sumarfrístund.
- Hjálpa einstakling við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
- Aðstoða einstakling í kaffitímum.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi æskileg.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Skipulögð og öguð vinnubrögð.
- Metnaður og dugnaður.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum.
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2026.
Nánari upplýsingar veitir Verna Sigurðardóttir í gegnum netfangið: verna.sigurdardottir@fjardabyggd.is