Kæribær er rúmlega 40 nemenda leikskóli sem skiptist á tvær deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki.
Við vinnum eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og tökum virkan þátt í þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni:
- Uppeldi og menntun leikskólabarna
- Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs
- Foreldrasamstarf í samráði við stjórnendur
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntun og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari (æskilegt)
- Reynsla af starfi með börnum kostur
- Góð samskiptahæfni og frumkvæði
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
Starfið:
- 100% starfshlutfall
- Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
- Tímabundin ráðning út júní 2026 með möguleika á framtíðarráðningu
- Öll kyn hvött til að sækja um
- Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Ef ekki fæst kennari með leyfisbréf kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða reynslumikinn starfsmann samkvæmt lögum nr. 95/2019.
Umsókn skal fylgja: ferilskrá, kynningarbréf, yfirlit um nám og störf, leyfisbréf (ef við á) og upplýsingar um meðmælendur.
Nánari upplýsingar gefur:
Hildur Ósk Pétursdóttir, leikskólastjóri í síma 475-9055 eða á hildurosk@skolar.fjardabyggd.is og
Guðný Elísdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 475-9055 eða á gudny@skolar.fjardabyggd.is