Laus er staða deildarstjóra sérkennslu við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru um 100 nemendur. Skólinn starfar í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar undir sama þaki og leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólastarfinu er unnið með byrjendalæsi, að innleiðingu leiðsagnarnáms, innleiðingu uppfærðrar aðalnámskrár og samvinna er um innra mat og gæðastarf í grunnskólum Fjarðabyggðar. Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur". Skólinn er einn af fimm grunnskólum Fjarðabyggðar sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi í Fjarðabyggð.
Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.
Helstu verkefni:
- Annast skipulag sérkennslu og stuðnings í samstarfi við skólastjórnendur.
- Sinna hlutverki tengiliðar samkvæmt lögum um farsæld barna.
- Leiðbeina og styðja annað starfsfólk við að mæta ólíkum þörfum nemenda.
- Þátttaka í skólaþróun.
- Um 40% starfsins felst í kennslu, sem getur hvort sem er verið sérkennsla eða kennsla í faggrein.
Menntun og hæfniskröfur:
. Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla.
. Menntun í sérkennslufræðum er æskileg.
. Reynsla af verkefnastjórn og kennslu ólíkra nemendahópa er æskileg.
. Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði.
Allar frekari upplýsingar veitir Líneik Anna Sævarsdóttir, stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu, í síma 895 1532 eða á netfanginu lineik.a.saevarsdottir@fjardabyggd.is
Staðan er laus frá 1. ágúst 2026. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl
Umsókn skal fylgja ferilsskrá, leyfisbréf til kennslu, bréf þar sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslumála, og ábendingar um meðmælendur.
Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar