Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

side photo

Aðstoðarskólastjóri við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

 

Staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er laus til umsóknar.

 

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru um 100 nemendur. Skólinn starfar í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar undir sama þaki og leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólastarfinu er unnið með byrjendalæsi, að innleiðingu leiðsagnarnáms, innleiðingu uppfærðrar aðalnámskrár og samvinna er um innra mat og gæðastarf í grunnskólum Fjarðabyggðar. Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur".

Skólinn er einn af fimm grunnskólum Fjarðabyggðar sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi í Fjarðabyggð.

 

Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.

 

Helstu verkefni:

  • Aðstoð við stjórnun og daglegan rekstur skólans.
  • Aðstoð við skipulag skólastarfs og stuðningur við starfsfólk.
  • Þátttaka í stefnumótun og þróun skólastarfs.
  • Samskipti við nemendur og foreldra.

Menntunar- og hæfniskröfur:

. Leyfisbréf til kennslu. 

. Menntun í stjórnun er æskileg.
. Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg.
. Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði.

 

Allar frekari upplýsingar veitir Líneik Anna Sævarsdóttir, stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu, í síma 895 1532 eða á netfanginu lineik.a.saevarsdottir@fjardabyggd.is

Staðan er laus frá 1. ágúst 2026. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl - 27. mars.

Umsókn skal fylgja ferilsskrá, leyfisbréf til kennslu, bréf þar sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslumála og ábendingar um meðmælendur.

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar.