Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

side photo

Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Staða skólastjóra við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er laus til umsóknar

 

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru um 100 nemendur. Skólinn starfar í SkólamiðstöðFáskrúðsfjarðar undir sama þaki og leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólastarfinu er unnið meðbyrjendalæsi, að innleiðingu leiðsagnarnáms, innleiðingu uppfærðrar aðalnámskrár og samvinna er um innra mat og gæðastarf í grunnskólum Fjarðabyggðar. Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART. Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur". Skólinn er einn af fimm grunnskólum Fjarðabyggðar sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi í Fjarðabyggð. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.

 

Helstu verkefni:

  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri
  • Skipulag skólastarfs og samhæfing starfskrafta skólans
  • Fagleg forysta, stefnumótun og þróun skólastarfs
  • Samstarf við stofnanir, heimili og samfélag

 

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Menntun í stjórnun er æskileg
  • Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg
  • Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði

Allar frekari upplýsingar veitir Líneik Anna Sævarsdóttir, stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu, í síma 895 1532 eða á netfanginu lineik.a.saevarsdottir@fjardabyggd.is

Staðan er laus frá 1. ágúst 2026. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl

Umsókn skal fylgja ferilsskrá, leyfisbréf til kennslu, bréf þar sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslumála og ábendingar um meðmælendur.

 

Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar á starf.fjardabyggd.is