Störf í hlutastarfandi slökkviliði - Breiðdalsvík

side photo

Auglýsir eftir starfsmönnum til að starfa við starfstöð slökkviliðsins á Breiðdalsvík

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Slökkvistörf
  • Þátttaka í æfingum
  • Umhirðu húss, tækja og búnaðar og annarri þeirri vinnu er fellur til á slökkvistöð

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Hafa náð 20 ára aldri
  • Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
  • Æskilegt er að hafa gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C-réttindi)
  • Umsækjendur þurfa að standast læknisskoðun og þrekpróf.
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna undir álagi.
  • Góðir líkamsburðir, andlegt- og líkamlegt heilbrigði
  • Almenn reglusemi og háttvísi
  • Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur.
  • Vera með hreint sakarvottorð
  • Vera búsettur á Breiðdalsvík

 

Inntökupróf:

  • Könnun á lofthræðslu og innilokunarkennd
  • Þrek- og styrktarpróf
  • Starfstengd verkefni
  • Viðtal

Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2026 og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.