Slökkvilið Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingar á slökkvistöðinni að Hrauni á Reyðarfirði. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga og slökkvistörf. Leitað er að áhugasömum aðilum sem leggja metnað í faglegt og gott starf þar sem traust og samheldni ríkir.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sjúkraflutningar
- Slökkvistörf
- Þátttaka í æfingum og þjálfun annarra viðbragðsaðila.
- Umhirðu húss, tækja og búnaðar og annarri þeirri vinnu er fellur til á slökkvistöð.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8. gr. reglugerðar nr.792/2001, m.a.
- Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
- Æskilegt er að hafa gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C-réttindi)
- Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.
- Að auki þurfa umsækjendur að standast læknisskoðun og þrekpróf.
- Góð samskiptahæfni og geta til að vinna undir álagi.
- Góðir líkamsburðir, andlegt- og líkamlegt heilbrigði
- Almenn reglusemi og háttvísi
- Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur
- Vera með hreint sakarvottorð
Inntökupróf:
- Könnun á lofthræðslu og innilokunarkennd
- Þrek- og styrktarpróf
- Starfstengd verkefni
- Viðtal
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna.
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026.
Allar frekari upplýsingar veitir Ingvar Georg Georgsson, slökkviliðsstjóri slökkviliðs Fjarðabyggðar á netfanginu ingvar.georgsson@fjardabyggd.is