Sumarstarfsmenn safna Menningarstofu

side photo

Fjarðabyggð auglýsir sumarstörf safna Menningarstofu laust til umsókna.

 

Menningarstofu rekur Safnahúsið á Norðfirði sem hýsir Sjóminja og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar, Náttúrugripasafn Austurlands, Málverkasafn Tryggva Ólafssonar, Sjóminjasafn Austurlands, Íslenska Stríðsárasafnið og Frakkar á Íslandsmiðum.

Menningarstofu hefur sett sér markmið til næstu fimm ára um uppbyggingu safnanna í Fjarðabyggð þar sem lögð er áhersla á eflingu þeirra og er hafin uppbygging á endurnýjun Íslenska stríðsárasafnsins.

 

Leitað er að einstaklingum með brennandi áhuga fyrir miðlun sagnaarfs sveitarfélagsins og almennu safnastarfi.

 

Sumarstörfin eru fyrst og fremst falin í leiðsögn gesta og gæslu sýninga en með tækifærum að vinna að fjölþættum og áhugaverðum verkefnum sem tengjast safnamálum í samstarfi við teymi starfsmanna menningarstofu.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn afgreiðsla og símsvörun.
  • Leiðsögn og móttaka gesta í sýningarhúsum.
  • Annast skráningu safngesta.
  • Annast móttöku aðgangseyris og daglegt uppgjör.
  • Annast sölu varnings á vegum safnsins.
  • Aðstoð við uppsetningu viðburða
  • Annast þrif á safnrýmum og sér til þess að sýningin sé ávallt hrein og til fyrirmyndar.
  • Vinnur með samstarfsmönnum að upplýsingagjöf til viðskiptavina safnsins
  • Vinnur með safnateymi að skráningu safnmuna og í öðrum skilgreindum verkefnum

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun. Háskóla- eða fagmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Reynsla af safnastarfi, skráningu, afgreiðslu- og/eða þjónustustarfi er mikilvæg
  • Góð almennt tölvukunnátta kostur
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku er áskilin. Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu máli kostur
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

Starfið gegnir veigamiklu hlutverki sveitarfélagsins í safnamálum. Rík áhersla er lögð á teymisvinnu og góð samskipti. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

 

Allar frekari upplýsingar veitir Þórhildur Tinna Sigurðardóttir forstöðumaður, í síma 8486962 eða á netfanginu thorhildur.tinna@fjardabyggd.is

 

Umsóknarfrestur er til og með 8. mars 2026.

 

Sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is