Starfið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn og fullorðna sem sækja íþróttamiðstöðvar á eigin vegum eða á vegum skóla. Rík áhersla er lögð á góða samskiptahæfileika, sveigjanleika og þjónustulund.
Helstu verkefni:
- Eftirlit og gæsla með notendum íþróttamiðstöðvar
- Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum þar sem reknar eru sundlaugar
- Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir kennslu
- Almenn afgreiðsla
- Allar almennar ræstingar í Íþróttamiðstöðinni
- Þvottur á handklæðum og sundfatnaði.
Hæfniskröfur:
- Reynsla af þjónustustörfum
- Tungumálakunnátta til að geta þjónustað erlenda gesti
- Námskeið í skyndihjálp er kostur
Góð samskiptafærni, sveigjanleiki og þjónustulund
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Allar frekari upplýsingar veita Jóhann Ragnar Benediktsson , Forstöðumaður íþróttamannvirkja, í síma 470 9070 eða á netfanginu johannrb@fjardabyggd.is og Sigurjón Egilsson , Forstöðumaður íþróttamannvirkja, í síma 470 9069 eða á netfanginu sigurjon.egilsson@fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf strax,