Leikskólakennari við Leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði

side photo

Kæribær er 40 nemenda leikskóli sem skiptist á tvær deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu starfsfólki. Kæribær vinnur samkvæmt uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnáttu

 

Um er að ræða 100 % stöðu, sem við hvetjum öll kyn til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Umsókninni skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Nánari upplýsingar gefa:

Hildur Ósk Pétursdóttir, leikskólastjóri, hildurosk@skolar.fjardabyggd.is, s. 475-9055
Guðný Elísdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, gudny@skolar.fjardabyggd.is, s. 475-9055