Tónlistarkennari óskast
Tónlistarskóla Fjarðabyggðar vantar píanókennara í 100% stöðu. Aðalstarfsstöð verður í Neskaupstað. Ráðið er í starfið frá 1. nóvember 2025.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla nemenda í samræmi við þarfir þeirra og samkvæmt aðalnámskrá og skólanámskrá.
- Undirbúningur nemenda fyrir próf, tónleika, tónfundi, sýningar og aðra tónlistarviðburði.
- Skipulag og utanumhald á kennslu eigin nemenda.
- Samskipti við forráðamenn og samstarfsfólk.
- Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd tónleika og annarra tónlistarviðburða.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
- Færni í mannlegum samskiptum
- Hreint sakavottorð
Í Tónlistarskóla Fjarðabyggðar eru rúmlega 300 nemendur og eru flestir á grunnskólaaldri. Kennsla fer fram á skólatíma grunnskóla að mestu leyti og eru tónlistarkennslustofur í sama húsnæði og grunnskólarnir. Mjög gott samstarf er við grunn- og leikskóla. Alls eru sex starfsstöðvar og kennarar við skólann geta þurft að kenna á mismunandi starfsstöðvum.
Mikið og gott samstarf er milli kennara og skólinn kennir eftir hugmyndafræði lærdómssamfélagsins.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og FT/FÍH.
Umsóknarfrestur er til 30. október 2025.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir Valdimar Másson, skólastjóri, í síma 4759035, 8359035 eða á netfanginu valdimar@skolar.fjardabyggd.is