Leitast er eftir því að ráða frístundaleiðbeinendur í frístundaheimili á Reyðarfirði
Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.
Um er að ræða stöður í 55% hlutfalli hver staða og er vinnutími frá 12:30-16:30 alla virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hjálpar nemendum við að skipuleggja og framkvæma ýmis þroskandi verkefni.
- Gefur nemendum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.
- Aðstoðar nemendur við heimanám.
- Aðstoðar nemendur í kaffi- og matartímum.
- Gæta fyllsta öryggis í vinnu með nemendur og forðast þær aðstæður sem reynst geta þeim hættulegar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Ábyrgð og stundvísi.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst nk.
Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Sigrún Jóhannsdóttir, deildarstjóri frístund barna og unglinga í hildur.johannsdottir@fjardabyggd.is