Hafnarvörður við Fjarðabyggðarhafnir

side photo

Fjarðabyggðarhafnir auglýsa laus til umsóknar starf hafnarvarðar við Fjarðabyggðarbyggðarhafnir. Um er að ræða fullt starf auk bakvakta. Starfið felur í sér hafnarvörslu, vigtun og þjónustu við viðskipavini hafnarinnar ásamt ýmsum öðrum verkum sem til falla á höfnunum. Starfið er lifandi og kallar á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki. Starfsvettvangur eru hafnir innan Fjarðabyggðar.

 

Um er að ræða tímabundið starf til eins árs frá 1. september 2025, með möguleika á framlengingu.


Helstu verkefni:

  • Þjónusta við viðskiptavini hafnarinnar s.s. binda og losa skip við komur og brottfarir, afgreiðsla vatns og rafmagns, sorphirða frá skipum, vigtun o.fl.
  • Eftirlit og umsjón með skipakomum, vöruflutningum og öðru því sem um höfnina fer, skráning þeirra og afla í aflaskráningarkerfi Fiskistofu
  • Stjórn á umferð skipa um höfnina og ákvörðun um legustað þeirra, færsla innan hafnar
  • Viðhald, hreinsun og snyrting hafnarbakka og annarra hafnarmannvirkja
  • Snjó- og hálkueyðing af hafnarbökkum, bryggjuköntum, pollum og bílvog.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Hafnargæslumannsréttindi í hafnarvernd kostur
  • Vigtarréttindi kostur
  • Bílpróf
  • Góð íslenskukunnátta
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund

Starfslýsing-hafnarvörður

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.


Umsóknarfrestur er til og með 13. júlí nk. og eru umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um. Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skulu fylgja umsókn.

Nánari upplýsingar veitir Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri Fjarðabyggðarhafna birgitta@fjardabyggd.is