Fjarðabyggð leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf fulltrúa á fjármála- og greiningarsvið.
Fjármála- og greiningarsvið er stoðsvið við önnur svið og stofnanir Fjarðabyggðar. Verkefni fjármála- og greiningarsviðs eru m.a. umsjón með fjárhagsupplýsingakerfi, áætlanagerð og gerð fjárhagsyfirlita og ársreiknings. Greiningar og upplýsingagjöf um rekstur sveitarfélagsins og stofnana þess.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á forskráningu reikninga í uppáskriftarkerfi.
- Utanumhald og uppsetning bókunartilvísana.
- Afstemmingar og yfirferð bókhaldsgagna.
- Almenn bókhaldsstörf og tilfallandi verkefni.
- Þáttaka í umbótaverkefnum og hagræðingu ferla innan fjármála- og greiningarsviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Viðurkenndur bókari eða önnur menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði.
- Reynsla af bókhaldi og afsemmingum æskileg en ekki skilyrði.
- Þekking og reynsla af fjárhagsupplýsingakerfi er kostur
- Góð almenn tölvukunnáta
Um starfið
Um er að ræða 100 % stöðu sem hentar öllum kynjum og hvetjum við áhugasama að sækja um. Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til 30. júní 2025.
Nánari upplýsingar gefur: Jóhann Gunnsteinn Harðarson, fjármálastjóri í síma 470-9098 eða á johann.hardarson@fjardabyggd.is