Staða skólastjóra við Nesskóla í Neskaupsstað er laus til umsóknar. Leitað er að kraftmiklum og lausnamiðuðum leiðtoga sem er tilbúinn að leiða þróttmikið skólastarf og taka þátt í eflingu skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.
Nesskóli er um 190 nemenda grunnskóli og í sama húsnæði er starfsstöð Tónlistarskóla Fjarðabyggðar og bókasafnið á Norðfirði. Í skólunum ríkir góður starfsandi og þar er góð vinnuaðstaða. Í næsta nágrenni eru leikskólinn Eyrarvellir og Verkmenntaskóli Austurlands. Skólinn er einn af fimm grunnskólum Fjarðabyggðar sem vinna þétt saman, í skólastarfinu er m.a. byggt á byrjenda læsi, hugmyndafræði leiðsagnarnáms, Uppeldi til ábyrgðar og ART og samvinna er um fjölbreytt þróunarstarf.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans; www.nesskoli.is.
Helstu verkefni:
. Ábyrgð á rekstri skólans og þróunarvinnu
. Fagleg forysta, dagleg stjórnun og samhæfing starfskrafta skólans
. Víðtækt samstarf við stofnanir, heimili og samfélag
Menntun og hæfniskröfur:
. Umsækjandi skal hafa leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
. Viðbótarmenntun í stjórnun er æskileg
. Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg
. Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði
Skólastjóri þarf að hafa metnað í skólamálum og vera tilbúinn að leiða faglegt og félagslegt starf innan skólans og stuðla að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.
Starfslýsing Skólastjóra Nesskóla
Allar frekari upplýsingar veitir Líneik Anna Sævarsdóttir, fræðslustjóri, í síma 895 1532 eða á netfanginu lineik.a.saevarsdottir@fjardabyggd.is
Staðan er laus frá 1. ágúst 2025. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní
Umsókn skal fylgja ferilsskrá, leyfisbréf til kennslu, bréf þar sem fram kemur hvers vegna sótt er um starfið, upplýsingar um frumkvæði á sviði fræðslumála, og ábendingar um meðmælendur.
Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar