Eyrarvellir er 8 deilda leikskóli með 6 starfrækar deildar og dvelja þar um 100 börn og starfa um 32 starfsmenn. Leikskólinn er skipaður skemmtilegu og metnaðarfullu fagfólki. Eyrarvellir vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Leikskólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni:
- Almenn störf í mötuneyti, bakstur, þrif og að farið sé eftir matseðlum sveitafélagsins.
- Ber ábyrgð á uppvaski, daglegum þrifum og frágangi eftir matagerð.
- Heldur þvottahúsi, búri sem og kaffistofu starfsmanna snyrtilegu.
- Er staðgengill yfirmatráðs í fjarveru hans.
Hæfnisþættir:
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta
Menntun:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af matreiðslu og starfi í eldhúsi.
- Reynsla af starfi með börnum æskileg.
Aðstoðarmatráður í eldhúsi er starfsmaður Fjarðabyggðar og starfar undir stjórn leikskólastjóra. Aðstoðarmatráður skal gegna starfinu samkvæmt leikskólalögum, reglugerðum, starfslýsingu, kjarasamningum og starfsmannastefnu Fjarðabyggðar, eftir því sem við á. Hann er þátttakandi í uppeldisstarfi skóla gagnvart næringu og heilsu.
Um er að ræða 100 % stöðu sem aðstoðarmatráður í eldhúsi leikskólans, starfið hentar öllum kynjum og hvetjum við áhugasama að sækja um.
Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2025. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur:
Sigurlaug Björk Birgisdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1485 sigurlaugbb@skolar.fjardabyggd.is og Jóhanna Smáradóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 477-1485 eða johannas@skolar.fjardabyggd.is