Leikskólakennari við leikskólann Eyrarvelli, Neskaupstað

side photo

Eyrarvellir er átta deilda leikskóli með sex starfrækar deildir og dvelja þar um 100 börn og starfa 32 starfsmenn. Leikskólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Eyrarvellir vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Leikskólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Um er að ræða 100 % stöður, sem við hvetjum öll kyn til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið sörf sem fyrst eða þann 1 ágúst 2025

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2025.

Greitt er 50.000 kr. álag fyrir að matast með börnunum og unnið er eftir kjörum um styttingu vinnuvikunnar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Nánari upplýsingar gefur: Sigurlaug Björk Birgisdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1485 sigurlaugbb@skolar.fjardabyggd.is og Jóhanna Smáradóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 4771485 johannas@skolar.fjardabyggd.is