Lyngholt er 90 nemenda skóli sem skiptist á sex deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Skólinn er staðsettur í nýlegu húsnæði við Heiðarveg. Grunnskóli Reyðarfjarðar er í næsta nágrenni við skólann og á milli stofnana er mikið og gott samstarf. Lyngholt vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni:
- Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og uppeldisstefnu Fjarðabyggðar.
- Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi leikskólans og ber ábyrgð á deildarstarfi.
- Deildarstjóri annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
- Deildarstjóri hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
- Deildarstjóri ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
Menntun og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu í leikskóla. (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi með börnum
- Þekking á uppeldisstefnum Fjarðabyggðar er æskileg.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og hæfnii í mannlegum samskiptum, frumkvæði og skipulagshæfni.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.
Fríðindi:
- Starfsmenn fá greiðslur fyrir að matast með börnum.
- Vinnutímastytting, er hægt að taka út daglega, vikulega, mánaðarlega eða safna í lengri frí.
- Sex skipulagsdagar eru á ári.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Um er að ræða 100 % stöðu.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar gefur:
Lísa Lotta Björnsdóttir skólastjóri, lisalotta@skolar.fjardabyggd.is s. 4741250/8603176 og
Gerður Ósk Oddsdóttir aðstoðarskólastjóri, gerdur@skolar.fjardabyggd.is s. 4741280.
https://lyngholt.leikskolinn.is/
Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl, 2025. Staðan er laus frá 1 ágúst eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf.