Dalborg er 60 nemenda skóli sem skiptist á fjórar deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Dalborg vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar og ART ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Verkefni:
- Vinnur undir stjórn deildarstjóra að uppeldi og menntun barnanna.
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar.
- Situr starfsmannafundi, deildarfundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varða starfsemi leikskólans.
- Samstarf við foreldra/forráðamenn barna á leikskólanum.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
- Reynsla af starfi með börnum æskileg
- Ábyrgð og stundvísi
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Um er að ræða 100 % stöður, sem við hvetjum öll kyn til að sækja um. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2025.
Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2025.
Greitt er 50.000 kr. álag fyrir að matast með börnunum og unnið er eftir kjörum um styttingu vinnuvikunnar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Nánari upplýsingar gefur:
Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, leikskólastjóri í síma 476-1341 eða á thordismb@skolar.fjardabyggd.is og Helena Rós Rúnarsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri í síma 476-1341 eða á helena@skolar.fjardabyggd.is