Leikskólakennari við Leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði

side photo

Kæribær er 41 nemenda skóli sem skiptist á tvær deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu starfsfólki. Kæribær vinnur samkvæmt uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.

Helstu verkefni:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra/skólastjórnendur
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 

Menntun og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

Um er að ræða 100 % stöður, sem við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2025. Staðan er laus frá 1. ágúst eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf.

Greitt er 50.000 kr. álag fyrir að matast með börnunum og unnið er eftir kjörum um styttingu vinnuvikunnar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknum skal fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf, leyfisbréf til kennslu, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.

Nánari upplýsingar gefa:

Hildur Ósk Pétursdóttir, leikskólastjóri, hildurosk@skolar.fjardabyggd.is, s. 475-9055
Guðný Elísdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, gudny@skolar.fjardabyggd.is, s. 475-9055