Deildarstjóri, Leikskólinn Kæribær, Fáskrúðsfirði

side photo

Kæribær er 41 nemenda leikskóli sem skiptist á tvær deildir. Skólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu starfsfólki. Skólinn er staðsettur við Hlíðargötu 56. Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar og leikskólinn Kæribær eru í sömu byggingu og samstarfið því mikið og gott. Kæribær vinnur samkvæmt uppbyggingarstefnunni, Uppeldi til ábyrgðar. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.


Helstu verkefni:

  • Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og uppeldisstefnu Fjarðabyggðar
  • Deildarstjóri er hluti af stjórnendateymi leikskólans og ber ábyrgð á deildarstarfi
  • Deildarstjóri annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar
  • Deildarstjóri hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar
  • Deildarstjóri ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinna

 

Menntun og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu í leikskóla. (leyfisbréf fylgi umsókn).
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Þekking á uppeldisstefnum Fjarðabyggðar er æskileg.
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum sem og hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

 

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Fríðindi:

  • Starfsmenn fá greiðslur fyrir að matast með börnum.
  • Vinnutímastytting, er hægt að taka út mánaðarlega eða safna í lengri frí.
  • Sex skipulagsdagar eru á ári.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Um er að ræða 100 % stöðu.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar gefur Hildur Ósk Pétursdóttir skólastjóri, hildurosk@skolar.fjardabyggd.iss. 4759055 og

Guðný Elísdóttir aðstoðarskólastjóri, gudny@skolar.fjardabyggd.is s. 4759055.

https://kaerib.leikskolinn.is/

 

Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl, 2025. Staðan er laus frá 1. ágúst eða eftir samkomulagi. Um er að ræða framtíðarstarf.