Við Nesskóla er laus staða forstöðumanns Vinasels sem er frístund fyrir nemendur á yngsta stigi skólans, um er að ræða 60%. Ráðið er í starfið til eins árs frá og með 1.ágúst 2025 með möguleika á framtíðar ráðningu.
Í skólanum eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Leitað er að einstakling með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við kennara, foreldra og stjórnendur skólans.
Neskaupstaður er í Fjarðabyggð. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfsmaður sér um skipulag daglegs starfs Vinasels
- Sér um gerð reikninga
- Sér um innkaup á mat fyrir miðdegishressingu
- Kappkostar að eiga gott samstarf og samskipti við þjónustunotendur og fjölskyldur þeirra
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Viðkomandi þarf að vera orðinn 18. ára
- Menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Góðir skipulagshæfileikar.
- Ábyrgð og stundvísi.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og framkomu.
- Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags. Starfsmenn sveitarfélagsins fá hreyfistyrk.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2025
Umsóknum skal fylgja greinagott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi.
Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Karen Ragnarsdóttir skólastjóri, karen@skolar.fjardabyggd.is og Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir aðstoðarskólastjóri, thorfridur@skolar.fjardabyggd.is, einnig í síma 477-1124.