Nesskóli í Neskaupstað óskar eftir tveimur umsjónarkennurum á yngsta stig í fullt starf frá og með 1. ágúst á yngsta stig.
Í skólanum eru um 200 börn í 1. - 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði of orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti samkvæmt aðferðum leiðsagnarnáms. Leitað er að einstakling með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við kennara, foreldra og stjórnendur skólans.
Skólastarf Nesskóla miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.nesskoli.is
Neskaupstaður er í Fjarðabyggðar. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
- Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskólanna með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Starfar með öðrum kennurum og sérfræðingum skólans og veitir upplýsingar um námsgengi einstakra nemenda.
- Að hafa hagsmuni nemenda að leiðarljósi og sýna hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu á grunnskólastigi, starfsreynsla er æskileg.
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla.
- Góð íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Skipulagshæfileikar.
- Reiðubúin/n að takast á við nýjungar.
- Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum æskileg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum KÍ og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025. Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl nk.
Umsóknum um starfið skal fylgja starfsferilskrá, kynningarbréf, leyfisbréf til kennslu, og meðmælendur. Í kynningarbréfi skal gera grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið og upplýsingar um umsagnaraðila.
Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veita Karen Ragnarsdóttir skólastjóri, karen@skolar.fjardabyggd.is og Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir aðstoðarskólastjóri, thorfridur@skolar.fjardabyggd.is, einnig í síma 477-1124.