Stuðningsfulltrúar við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

side photo

Lausar eru til umsóknar þrjár stöður stuðningsfulltrúa við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar. Um hlutastörf er að ræða sem eru um 70% hver. Stöðurnar eru lausar frá og með 1.ágúst nk. Leitað er að stuðningsfulltrúum með starfshæfni til að starfa með nemendum á með sértæka námsörðugleika á yngsta stigi, miðstigi og elsta stigi. Mikilvægt er að umsækjandi geti starfað á öllum stigum. Reynsla af vinnu með börnum er æskileg.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru tæplega 110 nemendur. Skólinn er hluti af Skólamiðstöð þar sem náin samvinna er við leikskóla, tónlistarskóla og bókasafn. Nóg er af lausu húsnæði á Fáskrúðsfirði og í sveitarfélaginu. Mikil áhersla er lögð á teymisvinnu á öllum sviðum skólastarfsins og sameiginlegri ábyrgð í starfi, ekki síst í stjórnendateymi, umsjónarkennarateymum og lausnarteymi skólans.

Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er mikil áhersla lögð á velferð nemenda og starfsfólks og litið svo á að hún sé lykillinn að árangri í öllum verkefnum. Unnið er í anda leiðsagnarnáms og byrjendalæsis. Unnið er eftir metnaðarfullri áætlun gegn einelti og lögð er áhersla á ART kennslu. Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar sem miðar að því að ýta undir ábyrgðarkennd og sjálfsstjórn barna og unglinga. Skólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð. Kjörorð skólans eru ,,ánægja, ábyrgð, árangur". Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Ábyrgð í starfi og stundvís
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfileikar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
  • Aðstoðar nemendur og reynir að ýta undir færni og sjálfstæði þeirra.
  • Vinnur eftir áætlun sem útbúin hefur verið í samráði kennara, deildarstjóra sérkennslu og annarra ráðgjafa.
  • Gæsla nemenda í forföllum kennara.
  • Situr fag-, teymis- og foreldrafundi eftir því sem við á.
  • Þátttaka í starfi grunnskóla í samráði og að óskum skólastjóra.

Laun eru samkvæmt Sambandi íslenskra sveitafélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 22.apríl 2025

Umsóknum skal fylgja gott yfirlit yfir nám og störf, ábendingar um meðmælendur sem og almennar upplýsingar um viðkomandi. Allir einstaklingar, óháð kyni, eru kvattir til að sækja um starfið.

Allar nánari upplýsingar gefa: Jóhanna Guðnadóttir skólastjóri s. 475-9020 eða á johannag@skolar.fjardabygggd.is