Eyrarvellir er átta deilda leikskóli með sex starfrækar deildir og dvelja þar um 100 börn og starfa 32 starfsmenn. Leikskólinn er skipaður góðu og metnaðarfullu fagfólki. Eyrarvellir vinnur samkvæmt uppeldisaðferðunum Uppeldi til ábyrgðar ásamt því að styrkja innleiðingu nemendalýðræðis. Leikskólinn tekur virkan þátt í ýmsu þróunarstarfi með öðrum skólum í Fjarðabyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast alla matagerð í leikskólanum með áherslu á fjölbreyttan og næringaríkan mat.
- Þjálfar og útdeilir verkefnum til aðstoðarmatráðs í samráði við leikskólastjóra.
- Útbýr sérfæði fyrir þá nemendur og starfsmenn sem þess þurfa af heilsufarsástæðum.
- Ber ábyrgð á öllum innkaupum fyrir eldhús og samskipum við birgja.
- Fylgist með borðbúnaði og öðrum lausamunum í eldhúsi og sér um endurnýjun og innkaup þegar þörf er á í samræmi við leikskólastjóra.
- Annast daglega ræstingu eldhúss, kaffistofu og í þvottahúsi, hefur umsjón með því að tæki og búnaður í eldhúsi starfi eðlilega.
- Ber ábyrgð á daglegum þrifum og mælingum á hitastigi fyrir HRAUST.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Menntun í matreiðslu er æskileg
- Góð reynsla og meðmæli af matreiðslu er skilyrði.
- Góð íslenskukunnátta.
Um starfið
Um er að ræða 100 % stöðu sem matráður í eldhúsi leikskólans, starfið hentar öllum kynjum og hvetjum við áhugasama að sækja um.
Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar gefa:
Sigurlaug Björk Birgisdóttir, leikskólastjóri í síma 477-1485 sigurlaugbb@skolar.fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er er til og með 14. apríl. 2025. Þarf að geta hafið störf frá 1. maí eða sem allra fyrst.