Slökkvilið Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingar á slökkvistöðinni að Hrauni á Reyðarfirði. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu við sjúkraflutninga og slökkvistörf.
Leitað er að áhugasömum aðilum sem leggja metnað í faglegt og gott starf þar sem traust og samheldni ríkir.
Helstu verkefni:
- Sjúkraflutningar
- Slökkvistörf
- Þátttaka í æfingum og þjálfun annarra viðbragðsaðila.
- Umhirðu húss, tækja og búnaðar og annarri þeirri vinnu er fellur til á slökkvistöð.
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
- Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 8.gr. reglugerðar nr.792/2001, m.a.
- Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
- Æskilegt er að hafa gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C-réttindi)
- Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu.
- Að auki þurfa umsækjendur að:
- Standast læknisskoðun og þrekpróf.
- Hafa jákvætt hugarfar
- Hafa framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að hafa á sér gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
- Menntun og/eða reynsla af starfi slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamanna er kostur
Starfslýsing sumarafleysingu slökkvilids- og sjúkraflutningsmanna
Fylgigögn: Prófskírteini, læknisvottorð, ökuferilsskrá, ljósrit af ökuskírteini og almenn ferilsskrá.
Kröfur um viðbragð setja skorður á búsetu innan ákveðinnar fjarlægðar frá slökkvistöð. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til og með 6.apríl 2025
Nánari upplýsingar veitir Ingvar Georg Georgsson, slökkviliðsstjóri, ingvar.georgsson@fjardabyggd.is eða í síma 470 9081.