Sumarafleysing næturvakta í stoðþjónustu

side photo

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir starfsmanni á næturvaktir á heimili fatlaðs barns í Neskaupstað.

Um er að ræða 2-3 næturvaktir í viku eða 70-90% hlutfall í vaktivinnu.

Stoðþjónusta gegnir því mikilvæga hlutverki að aðstoða fatlað fólk við athafnir daglegs lífs. Rík áhersla er lögð á kærleiksríka nálgun þar sem starfsmaður myndar tengsl, skapar öryggi og vinnur með einstaklingum á þeirra forsendum.

 

Starfslýsing:

  • Veita einstaklingum stuðning við athafnir daglegs lífs.
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum.
  • Starfa samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf.
  • Virkja einstakling til þátttöku í samfélaginu.
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd.
  • Almenn heimilisstörf.

Hæfniskröfur:

  • Viðkomandi þarf að vera orðin 18 ára.
  • Hreint sakavottorð.
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.

Umsóknarfrestur er til og með 31. Mars 2025

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Öll kyn eru hvött til að sækja um stöðuna. Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Anna Guðlaug, forstöðumaður búsetuþjónustu, í síma 844-4845 eða í gegnum netfangið anna.hjartardottir@fjardabyggd.is